Kveikt á hátalaranum
Ýttu á rofann og haltu honum inni.
Ef þú hefur aldrei parað hátalarann við tæki eða ef pörunum hefur verið eytt kviknar
sjálfkrafa á pörunarstillingu og Bluetooth-stöðuvísirinn byrjar að blikka hægt.
Ef þú hefur þegar parað hátalarann við eitt eða fleiri tæki tengist hátalarinn því tæki
sem hann var síðast notaður með. Ef hátalarinn getur ekki tengst tækinu sem var síðast
notað tengist hann við næsta tæki á listanum yfir pöruð tæki.
Ef hátalarinn er ekki tengdur fer hann í biðstöðu og ljósið á Bluetooth-stöðuvísinum
verður hvítt. Ef hátalarinn er ekki tengdur við tæki innan 30 mínútna slokknar á honum.
3